Samskiptavísur

Einstakur maður kom til mín á stofuna í júní sumarið 2011, sem ég hef kynnst betur á einu ári. Björgúlfur hefur náðargáfu að setja saman vísur. Þegar hann kom til mín í þriðja meðferðarskiftið skildi hann eftir vísu:

Tryggvi þú ert traustsins verður

trúr á þínu sviði,

enda vel af guði gerður

gælir við hryggjarliði.

Hann hafði kvalist af bakverk um tíma og kláraði meðferð á rúmum mánuði. Að endingu skildi hann eftir aðra vísu:

Hnykkina ég þakka þér

þú ert vel heppnaður,

vegna nuddsins nú ég er

nýr og betri maður.

Björgúlfur fær slæmt tak í bakið í febrúar 2012 við að glíma við heyrúllu. Hann kom í heimsókn á stofuna, og eftir tvö skifti var hann albata. Seinni dagurinn sem hann kemur er aftaka veður, og áður en hann leggur á heiðina heim aftur, skilur hann eftir sig vísu:

ÞAð var frábært þetta nudd

þannig skapar tækifæri,

til lífsgleði er leiðin rudd

ljúft ég þekka vinur kæri.

Eins og  fólk þekkir nota ég landpóst til að minna á endurkomu. Hann fékk eina slíka áminningu og kom þó ekkert væri takið. Hafði á orði að það væri betra að koma einu sinni of oft til mín en einu sinni of sjaldan. Þegar hann kvaddi gerði hann það með vísunni:

Þegar í baki vex upp vandi

og viljakraftur þverr

þá er alveg ómissandi

að eiga nudd hjá þér.