Kírópraktorstofa Tryggva Jónasonar.

Heimilisfang kiropraktorstofu Tryggva Jónassonar er Háaleitisbraut 66, í Grensáskirkja norðurendi, sér inngangur, 103 Reykjavík. Móttökusími er sami og gsm sími 8963004. Einnig má panta tíma um heimasíðuna á forsíðu undir “bókaðu tíma.” Daglegur opnunartími er frá 9-15, fimmtudaga er móttakan opin frá 9.00 til 17.00

Tímapantanir eru í gsm síma minn 8963004, annað hvort að hringja eða senda mér sms sem ég svara samdægurs. Einnig má senda mér pöntunarbeiðni í gegn um heimasíðuna.

Taxti stofunnar hefur verið uppfærður fyrir 2026

Frá og með 1.ágúst 2024 er afsláttur á meðferð sem hér segir: Komi gestur í meðferð sem tekur til fleiri meðferðarskipta en 7 á sama almanaksári er kr. 800.- afsláttur af hverju meðferarskipti á 7 skipti og svo frv.

Uppfærður taxti fyrir árið 2026 tekur gildi 01..01.2026 og gildir til 31.12.2026 á kiropraktorstofu Tryggva Jónassonar.

 

  1. Komugjald og meðferð kr. 6.800.
  2. Komugjald, viðtal og skoðun og fyrsta meðferð kr. 12.500.- 
  3. Skoðun eftir 24 mánuði kr. 7.300.-
  4. Teygjubæklingur og kennsla æfinga kr. 1100.-

Skýringar

  1. Komugjald er alltaf greitt hvort sem meðferð er framkvæmd eða ekki. Ef skjólstæðingur mætir ekki verður komugjald að skróptaxta, sem er kr. 2.300.- Forföll tilkynnast með dags fyrirvara.
  2. Í tilviki sem gestur er ekki á skrá ber heimsóknin aukagjald.
  3. Ef gestur hefur ekki heimsótt mig í tvö ár er aukagjald á endurkomu.
  4. Teygjubæklingar sem eru í boði styðjast við greiningu eftir skoðun. Þeir eru: Brugðist við bráðum bakverk, mjóbaksteygjur við krónískum vanda, mjóbaksteygjur fyrir eldri borgara, teygjur við hálsríg, nætursvefn, teygjur samhliða þungun, setvinna og teygjur tengdar setum,handleggjateygjur, teygjur við höfuðverk, öndun og andardráttur, teygjur við góðkynja stöðusvima, betri líkamsstaða og þyngdaraflið, fótateygjur, streitulosandi teyjur og hvenær er gott að tegja með brjósklosi.